Nýfundið Da Vinci verk í Gautaborg
Laugardagur, 13. mars 2010 09:29
Málverkið "La Bella Principessa", sem nýlega var eignað Leonardo da Vinci, verður til sýnis í Eriksberghallen í Gautaborg næstu mánuði. Myndin er metin á 100 milljónir punda og er hápunktur sýningar á verkum helstu meistara endurreisnartímabilsins, da Vinci, Michelangelo og Rafael.
Þetta mun vera í fyrsta skipti sem svo stór sýning á verkum þeirra er sett upp fyrir utan Ítalíu. Rauði þráður hennar er samspil þessara þriggja og samkeppnin sem ríkti þeirra á milli.
Dyrnar opna á föstudaginn og er gert ráð fyrir tvö hundruð þúsund gestum í Eriksberghallen fram til 15. ágúst þegar sýningunni líkur. Þeir sem eru áhugasamir um endurreisnina en komast ekki til Gautaborgar þurfa ekki að hafa áhyggjur því verkin verða sett upp hér og þar um heiminn næstu átta ár.
Heiti sýningarinnar er "And there was light" og hún er opin alla daga nema mánudaga frá klukkan tíu til átta á kvöldin. Aðgangseyrir fyrir fullorðinn gest er 225 sænskar krónur en ódýrara fyrir námsmenn og ungt fólk.
TENGT EFNI: Vegvísir fyrir Gautaborg
Mynd: And there was light.



Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur