Leigja út íslensk orlofshús í útlöndum

Nýtt fyrirtæki sérhæfir sig í útleigu á orlofshúsnæði í eigu Íslendinga í útlöndum

Það er oftar en ekki hagkvæmt að leigja sér íbúð eða hús þegar farið er til útlanda. Leigan er oftast ódýrari en gisting á hóteli og matarreikningurinn verður töluvert lægri en ella, ef eldunaraðstaðan í leiguhúsnæðinu er nýtt. 

Orlofseignir heitir nýtt fyrirtæki sem sérhæfir sig í leigu á íbúðarhúsnæði í eigu Íslendinga í útlöndum. Í dag eru um fimmtíu eignir á skrá fyrirtækisins að sögn Davíðs Klemenssonar, annars af stofnendum þess. Þær eru staðsettar í Flórída í Bandaríkjunum og í Frakklandi, Spáni og Portúgal. Að sögn Davíðs stendur til að bæta fleiri eignum við.

Leiga á orlofshúsum kostar á bilinu fimmtíu til sjötíu þúsund krónur á viku en íbúðir, til dæmis á svæðinu í kringum Alicante, kosta 35 þúsund krónur. Einnig er hægt að leigja hús og íbúðir til skemmri tíma.

Nánari upplýsingar um framboðið má finna inn á vef Orlofseigna.

NÝTT EFNI: Smáréttasvall að hætti Baska

 

Get Adobe Flash player

Könnun

Er líklegra að þú farir í utanlandsferð sumarsins á eigin vegum eða með ferðaskrifstofu?



Niðurstöður

Ferðaminningar

Ferðaminningar Guðrúnar Helgadóttur

Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.

 
Ferðaminningar Ólafar Nordal

Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda

 
Ferðaminningar Bryndísar Björgvinsdóttur

Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.

 
Ferðaminningar Magnúsar Orra Schram

Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda

 
Ferðaminningar Arnar Úlfars Sævarssonar

Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum

 

Billund

Danskt eyjahopp

Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða

 
Flug og hjól á Jótlandi

Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu

 
Stórtónleikastaður Dana

Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín

 
Hallirnar í heimahéraði Jóakims prins

Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar

 
Stærsta völundarhús heims og landsins bestu kartöflur

Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland

 

 
Í Legó í fríinu

Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland

 

Hitt og þetta

Fyrsta gönguleiðin fyrir allsbera

Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna

 
Útpæld hótel á góðu verði

Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París

 
Ekki svo einfalt með Easy Jet

Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur

 

 
25 byggilegustu borgirnar

Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle

 

 
5 bestu ódýru veitingastaðirnir í Kaupmannahöfn

Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn

 

 
Tvö glæný hótel í Berlín

Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum

 
Share |