Ekkert hass fyrir ferðamenn
Laugardagur, 17. júlí 2010 21:21
Hollenskum kaffihúsum sem selja kannabisefni verður bannað að afgreiða útlendinga ef Evrópudómstóllinn tekur undir álit aðallögmanns ESB.
Ferðamenn í hassvímu valda miklum vanda í Hollandi. Af þeim sökum hefur lengi verið um það rætt í landinu hvort banna eigi útlendingum að sækja hin sérstöku kaffihús þar sem má kaupa og neyta marijúana og hass. Yfirvöld í borginni Maastricht ákváðu að fara þá leið og í rökstuðningi fyrir banninu kemur fram að hassreykingar útlendinga valdi ringulreið í samfélaginu og séu gróðrarstía fyrir sölu á harðari efnum.
Einn kaffihúsaeigandi þar í borg virti hins vegar bannið að vettugi og greip lögreglan hann tvisvar sinnum glóðvolgan við að afgreiða útlenska kúnna. Kaffihúsið var því svipt starfsleyfinu. Í kjölfarið kærði vertinn málið og eftir nokkra ára bið er það komið á borð Evrópudómstólsins samkvæmt frétt Politiken í Danmörku.
Dómstóllinn leitar ávallt álits aðallögmanna ESB um þau mál sem fyrir réttinn koma og niðurstaða lögmannsins liggur nú fyrir. Hann telur að bæjaryfirvöld í Maastricht hafi verið í fullum rétti þegar þau settu bannið þar sem fíkniefni falli ekki undir lög Evrópusambandsins um frjálst flæði vara. Þess vegna megi setja um þau sérstakar reglur.
Það kemur sennilega í ljós undir lok árs hvort dómstóllinn tekur undir þetta álit aðallögmannsins en þangað til geta ferðamenn keypt hass á hinum frægu "Coffeeshops" um allt Holland nema í Maastricht.
NÝJAR GREINAR: Verða sér til skammar á lúxushótelum - Huggulega höfuðborgin
TILBOÐ: 15% afsláttur á hóteli í Amsterdam
Mynd: Andrijbulba (Creative Commons)



Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle