Ungabörn eiga líka að fá sérsæti
Mánudagur, 16. ágúst 2010 09:02
Allir flugfarþegar eiga að sitja í sínu eigin sæti að mati bandarísks slysavarnarráðs. Líka börn yngri en tveggja ára sem í dag þurfa að sitja í fanginu hjá fullorðnum.
Slysum á ungabörnum í flugvélum myndi fækka ef þau nytu sama öryggis og þeir sem eldri eru. Þetta er mat slysavarnarráðs vestanhafs sem beinir þeim tilmælum til flugmálayfirvalda þar í landi að breyta reglunum sem leyfa foreldrum að sitja með börn sem eru yngri en tveggja ára í flugtaki og lendingu.
Samkvæmt frétt New York Times er þetta ekki í fyrsta skipti sem þessi áskorun kemur fram en henni hefur alla jafna verið hafnað með þeim rökum að ef reglunum yrði breytt myndi það þýða að barnafjölskyldur hefðu síður efni á flugmiðum. Það hefði svo í för með sér að umferð á vegum úti myndi aukast og bílslysum fjölga.
Ungabörn greiða í dag lítið eða ekkert gjald fyrir flugmiða á meðan börn eldri en tveggja ára greiða 75% af fargjaldi fullorðinna.
NÝJAR GREINAR: Vatíkanið setur strangari reglur um klæðaburð
TILBOÐ: 10% afsláttur á gistingu i Kaupmannahöfn
Mynd: Katiew (Creative Commons)



Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn