Grunaðir um að halda uppi hótelverði
Þriðjudagur, 07. september 2010 21:21
Viðskiptahættir stjórnenda Booking.com eru til skoðunar hjá breska samkeppniseftirlitinu vegna gruns um verðsamráð.
Netsíðan Booking.com er meðal þeirra allra vinsælustu þegar kemur að hótelbókunum. Verðin sem þar eru í boði eru líka oftar en ekki þau lægstu á markaðinum. Og það er einmitt ástæðan fyrir rannsókn breska samkeppniseftirlitsins.
Samkeppnisaðili síðunnar segist nefnilega ítrekað hafa fengið kvartanir frá hóteleigendum í sumar þegar hann bauð gistingu á hótelunum þeirra á lægra verði en Booking.com. Hótelstjórarnir báru fyrir sig samkomulag þess efnis að Booking.com fengi ávallt að bjóða lægsta verðið. Þessir viðskiptahættir hafa hugsanlega komið í veg fyrir eðlilega verðmyndun á hótelmarkaðinum og því er málið nú til rannsóknar samkvæmt frétt The Times.
Ef forsvarsmenn fyrirtækisins verða fundnir sekir eiga þeir von á háum sektum og málshöfðun. Talsmaður þess segir í viðtali við The Times að engar reglur hafi verið brotnar og undirstrikar að hótelum er það í sjálfsvald sett hvort þau bjóði herbergi til sölu á síðunni eða ekki.
NÝJAR GREINAR: Þar sem kaffi cortado kallast Gíbraltar
TILBOÐ: Gistiheimili og hótelíbúðir í London frá 99 pundum
Mynd: Wikicommons



Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum