Tíðni flugslysa í lágmarki

Það hefur aldrei verið öruggara að fljúga en það var í fyrra.

Fjöldi flugfarþega á síðasta ári var 2,8 milljarðar og farnar voru þrjátíu og átta milljónir flugferða. Af þeim enduðu tuttugu og fimm með óhappi og fórust 497 farþegar. Flugslys hafa ekki áður verið eins fátíð samkvæmt skýrslu frá Ascend sem er einskonar greiningardeild fluggeirans.

Haft er eftir talsmanni Ascend að flugsamgöngur séu nú tvisvar sinnum öruggari en þær voru fyrir fimmtán árum síðan. Flugöryggið er mest í Ástralíu, Bandaríkjunum og í vesturhluta Evrópu.

Það voru aðallega lítil og óþekkt flugfélög sem urðu fyrir óhöppum í fyrra samkvæmt Ascend.

NÝJAR GREINAR: Við fáum meira frí í ár - Aðeins annað hvert flug á réttum tíma

Mynd: Kossy/Creative Commons

Get Adobe Flash player

Könnun

Ertu búin(n) að bóka utanlandsferð sumarsins?




Niðurstöður

Túristi á Facebook.

Get Adobe Flash player
Share |