Farþegum fjölgaði mest hér á landi
Þriðjudagur, 17. janúar 2012 08:03
Ferðagleði Norðurlandabúa var mikil í fyrra og flugfarþegum fjölgaði mikið. Hvergi þó meira en hér á landi.
Umferðin um stærstu flugvelli Norðurlanda var mikil á síðasta ári. Á Keflavíkurflugvelli voru farþegarnir rúmlega tvær milljónir og fjölgaði þeim um 17,9 prósent. Litlu minni var aukningin í Helsinki.
Um Kastrup í Kaupmannahöfn fóru flestir eða nærri tuttugu og þrjár milljónir farþega. Þar var aukningin hins vegar minnst eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan sem byggð er á tölum frá flugvöllunum sjálfum:
| Flugvöllur | Fjöldi farþega 2011 | Aukning í % | |
| 1. | Keflavíkurflugvöllur | 2,1 milljón |
17,9% |
| 2. | Vantaa í Helsinki | 14,9 milljónir | 15,5% |
| 3. | Arlanda í Stokkhólmi | 19,1 milljón | 12% |
| 4. | Gardermoen í Ósló | 21,1 milljón |
10,5% |
| 5. | Kaupmannahafnarflugvöllur | 22,3 milljónir |
5,7% |
TENGDAR GREINAR: Mesta aukningin á Keflavíkurflugvelli
NÝJAR GREINAR: Frítt fyrir nýjar flugleiðir - Flugferðum fjölgar um fimm prósent
Mynd: Wikicommons




