Púðursnjór í norskum skíðabrekkum
Laugardagur, 07. nóvember 2009 10:08
Skíðavertíðin hefst í Noregi um helgina. Nokkuð fyrr en venjulega. Skíðafærið er mjög gott samkvæmt nýjustu fréttum frá Noregi og brekkurnar í Hemsedal eru þakktar fallegum púðursnjó (sjá vefmyndavél svæðisins). Reyndar þurfa skíðaáhugamenn í Hemsedal ekki að óttast hlýindi því forsvarsmenn svæðisins lofa skíðasnjó frá 13. nóvember til 2. maí í fimm kílómetra löngum brekkunum. Þetta loforð gildir einnig á mörgum öðrum skíðasvæðum í landinu. Á heimasíðu ferðamálaráðs Noregs er að finna góðar upplýsingar þau fjölmörgu skíðasvæði sem finna má í landinu. Flest þeirra eru í suðurhlutanum og því aðeins í nokkurra tíma akstursfjarlægð frá Gardermoen flugvelli. En þangað fljúga SAS og Icelandair í allan vetur. MEIRA: Krefjast ódýrari bjór í skíðabrekkum Skíðaferð til útlanda á gamla genginu



Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum