Lokar besta veitingastað í heimi
Miðvikudagur, 27. janúar 2010 12:17
Kokkurinn á El Bulli hefur fengið nóg. Þrátt fyrir að vera uppbókaður allt árið, handhafi þriggja Michelin stjarna og margsinnis sagður besti matreiðslumaður í heimi ætlar hann að loka staðnum sínum í tvö ár.
Ferrán Adriá heitir hinn tæplega fimmtugi Spánverji sem galdrað hefur fram rétti sem eiga sér enga hliðstæðu. Maturinn á El Bulli í nágrenni Barcelona á Spáni er mjög sérstakur. Hráefnið er oftar en ekki erfitt að þekkja í sjón en aftur á móti er bragðið af því kunnulegt. Adriá lætur sér nefnilega ekki nægja að sneiða, rífa eða bræða ostinn heldur eyðir hann miklum tíma á rannsóknarstofu sinni til að geta breytt ostinum í púður, ravíólinu í súpu og búa til trufflu cappuccino. Vegna þessarar öfgafullu tilraunastarfsemi hefur hann verið gagnrýndur fyrir látalæti en bragðlaukar heimsins virðast engu að síður vera sammála um að maturinn sé stórkostlegur. El Bulli er því einn af sárafáum veitingastöðum í heiminum sem hlotið hafa þrjár Michelin stjörnur. En stjörnur dekkjaframleiðandans eru sennilega besta viðurkenning sem matreiðslumenn geta fengið.
Ennþá möguleiki á borði
Það verður engin matur borinn á borð á El Bulli árin 2012 og 2013. Í viðtali við The Times lofar hann hinsvegar að árið 2014 verði ár afreka á matreiðslusviðinu. Hann segist hins vegar að núna þurfi hann góða hvíld því vinnudagarnir hafi verið langir síðustu tuttugu og fimm ár. Þeir sem vilja komast í mat hjá Adrián eiga möguleika á að panta sér borð á næsta ári en opnað verður fyrir borðapantanir síðar á árinu. Það er hins vegar vissara að vera tilbúin þegar opnað verður fyrir pantanir því alla jafna verður uppselt á nokkrum mínútum. Svo miklar eru vinsældirnar El Bulli.
Hér má lesa mola af Jonas.is um þessi tíðindi af El Bulli.
TENGT: Vegvísir Túrista um Barcelona
MEIRA: Gott kaffi í Gautaborg



Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn