Læknar njóta sérkjara hjá Lufthansa
Mánudagur, 01. febrúar 2010 12:30
Dönskum læknum bjóðast þessa dagana sérstök kjör hjá þýska flugfélaginu Lufthansa ef þeir gerast meðlimir í vildarklúbbi félagsins og eru tilbúnir til að veita samferðarfólki sínu aðstoð í háloftunum gerist þess þörf. Læknarnir fá við skráningu í klúbbinn auka vildarpunkta sem þeir geta ráðstafað að vild og einnig munu þeir fá tilboð um ferðir á ráðstefnur í framtíðinni. Á sama tíma veita þeir upplýsingar um sérfræðiþekkingu sína sem settar verða inn á farþegalista svo áhafnir flugvéla félagsins geti leitað til læknanna í neyð.
Með þessu vonast forsvarsmenn Lufthansa til að minnka þann mikla kostnað sem fyrirtækið verður fyrir þegar millilenda þarf flugvélum til að koma veikum farþegum undir læknishendur. Í samtali við dönsku vefsíðuna Avisen.dk segir formaður siðferðisráðs læknafélagsins þar í landi að sér þyki tilboðið óeðlilegt enda séu læknar skyldugir til að aðstoða fólk í neyð. Gylliboð Lufthansa breyti þar engu um.



Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn