Dýrasta listaverk heims á heima í Danmörku

Bronsstytta eftir svissneska listamanninn Alberto Giacometti var seld fyrir metfé í vikunni. Söluverðið er sextíu og fimm milljónir punda sem samsvarar rúmum þrettán milljörðum íslenskra króna. Ciacometti leysir þar með sjálfan Picasso af hólmi sem dýrasti listamaður heims samkvæmt uppboðshaldaranum Sotheby's. 

Verkið sem um ræðir ber heitið "L'Homme Qui Marche", eða hinn gangandi maður. Kaupandinn er óþekktur og ekki er vitað hvað hann ætlar sér að gera með styttuna. Það vill hins vegar þannig til að Louisiana safnið í Danmörku á annað eintak af þessari sömu styttu. Giacometti bjó nefnilega til fleiri en eitt eintak af verkum sínum og Louisiana keypti sína styttu fyrir mörgum árum. Haft er eftir framkvæmdastjóra safnsins í dönskum fjölmiðlum að þetta séu gleðileg tíðindi en hann tekur fram að safnið megi ekki selja verk sín og því verður styttan, ásamt tuttugu öðrum verkum Giacometti, til sýnis um ókomna framtíð á Norður-Sjálandi. Hann bætir því við að hann hafi óskað eftir fundi með tryggingafélagi safnsins enda hafi verðmæti listaverkasafnsins hækkað til muna í vikunni. 

Þess má geta að nýjasta sýning Louisiana hlýtur fullt hús í dönskum fjölmiðlum í vikunni. Sýningin kallast Farven i kunsten og stendur til 13.júní.

TENGT: Skandinavískt sjarmatröll - dagskrá Louisiana í ár

 

 

Get Adobe Flash player

Könnun

Er líklegra að þú farir í utanlandsferð sumarsins á eigin vegum eða með ferðaskrifstofu?



Niðurstöður

Ferðaminningar

Ferðaminningar Bryndísar Björgvinsdóttur

Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.

 
Ferðaminningar Magnúsar Orra Schram

Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda

 
Ferðaminningar Guðrúnar Helgadóttur

Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.

 
Ferðaminningar Ólafar Nordal

Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda

 
Ferðaminningar Arnar Úlfars Sævarssonar

Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum

 

Billund

Danskt eyjahopp

Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða

 
Í Legó í fríinu

Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland

 
Stærsta völundarhús heims og landsins bestu kartöflur

Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland

 

 
Flug og hjól á Jótlandi

Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu

 
Hallirnar í heimahéraði Jóakims prins

Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar

 
Stórtónleikastaður Dana

Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín

 

Hitt og þetta

Ekki svo einfalt með Easy Jet

Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur

 

 
5 bestu ódýru veitingastaðirnir í Kaupmannahöfn

Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn

 

 
Fyrsta gönguleiðin fyrir allsbera

Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna

 
25 byggilegustu borgirnar

Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle

 

 
Útpæld hótel á góðu verði

Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París

 
Tvö glæný hótel í Berlín

Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum

 
Share |