Tilboð á hóteli allra landsmanna í Köben
Föstudagur, 26. febrúar 2010 15:06
Þá sem langar að búa á fimm stjörnu hóteli í Kaupmannahöfn í vor ættu ekki að leita langt yfir skammt. Hótel skilanefndar Landsbankans í Kaupmannahöfn, D´Angleterre býður nefnilega þessi misserin þriðju nóttina fría.
Þetta er kostaboð fyrir þá sem vilja lúxus gistingu við Kóngsins nýjatorg. Ef hótelherbergið er bókað á vef Hotels.com kostar nóttin rúmar þrjátíu og eitt þúsund krónur. Þrjár nætur með morgunmat eru því á tæplega 95 þúsund en samkvæmt verðlista hótelsins kostar nóttin venjulega um áttatíu þúsund. Þetta er því kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja feta í fótspor íslenskra ráðherra sem margir hverjir hafa ekki tekið annað í mál en að gista á hótelinu á ferðum sínum til Kaupmannahafnar. Alla vega þegar þeir eru í opinberum erindagjörðum.
NÝTT:
Einföld gisting í flottum umbúðum
Nýir veitingastaðir í ódýrari í kantinum í Kaupmannahöfn
TENGT EFNI:



Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París