Einföld gisting í flottum umbúðum - New York
Fimmtudagur, 25. febrúar 2010 16:10
Margir gera lítið úr vægi góðra hótela í stuttri borgarferð. Segjast hvort eð er verja tímanum annars staðar. Oftar en ekki er þetta bara réttlæting fyrir því að bóka herbergi á ódýru og lúnu hóteli.

Sem betur fer fjölgar þeim hratt gististöðunum þar sem nostrað hefur verið við útlitið en verðinu engu að síður stillt í hóf. Það er því ekki lengur sparnaðarráð að bóka sér gistingu á úr sér gengnum hótelum.
Hér eru þrjú hótel í New York sem bjóða upp á einfalda en útpælda aðstöðu.
The Jane

Hótelbyggingin er gamalt sjómannaheimili í vesturhluta Greenwich Village. Herbergin eru lítil og innréttuð eins og svefnvagnar í gamaldags lest að viðbættu sjónvarpstæki og tengi fyrir ipod. Það eru tvö hundruð "klefar" á hótelinu og ódýrasta tveggja manna herbergið kostar 99 dollara. Gestirnir deila salernunum en þó er nokkur fínni herbergi (Captain´s cabin) með eigin baðherbergi. Aðbúnaðurinn og staðsetningin hentar því fullkomlega ungu fólki sem vill skemmta sér í nokkra daga í New York. Í hverfinu er ógrynni af börum, skemmtistöðum og verslunum þar sem verðlagið hentar þeim vel sem hafa aðeins minna milli handanna. Á hótelinu sjálfu er líka flottur bar og kaffihús þar sem hægt er að ná sér í orku eftir átök gærdagsins.
The Jane, 113 Jane Street, New York (sjá á korti).
The Pod


Líkt og á The Jane eru þarfir yngra fólks hafðar í fyrirrúmi á The Pod. Þar gengur allt út á að gera hlutina ódýra en vel útlítandi og ekki laust við að andi Ikea svífi yfir vötnum. Ódýrustu herbergin eru innréttuð með kojum og kosta því lítið, 89 dollara. Þeir sem nenna hins vegar ekki að standa í röð með handklæðið og snyrtitöskuna geta fengið sitt eigið baðherbergi fyrir 139 dollara. Reyndar eru líkurnar á að röð myndist í sturtuna ekki miklar því það er um það bil ein sturta á hver tvö herbergi. Staðsetningin er ágæt, á miðri Manhattan ekki langt frá Rockefeller Center og Bloomingdales.
The Pod, 230 East 51st Street, New York (sjá á korti)
The Ace

NOMAD kallast svæðið norðan við Madison Square Garden. Þetta hefur ekki verið vinsælasti hluti Manhattan hingað til en með tilkomu hótels eins og The Ace er vonast til að svæðið í kringum Empire State bygginguna rétti úr kútnum. Fyrsta Ace hótelið var opnað í Seattle og núna í byrjun árs opnaði útibúið í New York. Ódýrustu herbergin eru með kojum en dýrustu herbergin eru svokallaðar "loft" íbúðir þar sem pláss er fyrir fleiri gesti. Nokkrar aðrar týpur af herbergjum eru á hótelinu en lægsta verðið er 169 dollarar. Þetta er því ekki ódýrasta gistingin í bænum en hún kostar samt ekki meira en herbergi á týpísku keðjuhóteli. Dvölin á The Ace verður hins vegar vafalaust eftirminnilegri. Auðvitað er stutt í tilgerðina en þeir sem koma til að taka þátt í leiknum skemmta sér vel.
The Ace, 20W 29th Street, New York (sjá á korti)
Myndir: The Ace hotel, The Jane og The Pod
NÝTT: Nýir veitingastaðir í ódýrari í kantinum í Kaupmannahöfn
TENGT EFNI:
Share |



Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna