Groddalegur íburður
Föstudagur, 19. mars 2010 08:39
Það er engu líkara en iðnaðarmennirnir hafa skilið við hálfklárað verk á Rough Luxe hótelinu í London. Veggirnir eru annaðhvort ómálaðir eða þakktir rifnu veggfóðri, gólfefnin víða slitin og rússneskar ljósaperur á stöku stað. En svona á þetta að vera.
Rough Luxe er til húsa í gömlu gistiheimili í námunda við King´s Cross lestarstöðina í London. Núverandi eigandi þess keypti húseignina af ítalskri fjölskyldu sem rak þar hefðbundið gistihús í marga áratugi.
Við endurbyggingu á húsinu kom í ljós alls kyns veggfóður, flúr og flísar og þá kviknaði hugmyndin að þessum grófa stíl. Húsgögnin eru hins vegar af fínustu gerð þó mörg þeirra séu farin að láta á sjá. Þjónustan er svo í takt við það sem þekkist á bestu hótelum.
Það eru aðeins níu herbergi á þessu sérkennilega hóteli. Nóttin á þeim ódýrustu kostar rúmar tuttugu og fimm þúsund íslenskar en þau eru ekki með sérbaðherbergi. Fyrir fjörtíu og tvö þúsund krónur fæst hins vegar herbergi með baðkari úr kopar.
Það kostar álíka mikið að gista á Rough Luxe og á hefðbundnum fjögurra stjörnu hótelum í London. Það er hins vegar ekki spurning um hvort er eftirminnilegra.
Í bakgarði hótelsins er listasafn og kaffihús.
Myndir: Rough Luxe
ÞESSU TENGT: Skemmtileg gata í London
NÝTT EFNI: Hellt upp á með nýjustu tækni og vísindum



Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum