Sofið í rúmi Greta Garbo
Miðvikudagur, 19. maí 2010 20:59
Í herbergi númer 204 á Kung Carl hótelinu í Stokkhólmi sofa gestirnir í rúmi sem áður tilheyrði leikkonunni leyndardómsfullu, Greta Garbo. Hún gisti langdvölum í þessu sama herbergi á fjórða áratugnum og hennar eigin rúmi hefur nú verið komið þar fyrir.
Frægir fastagestir eru alla jafna góð auglýsing fyrir þá staði sem þeir sækja. Jafnvel löngu eftir að þeir eru dánir. Greta Garbo er sennilega þekktasta leikkona sem Svíar hafa alið. Hún dvaldi oft í herbergi númer 204 á Kung Carl hótelinu í Stokkhólmi þegar hún heimsótti föðurlandið á fjórða áratug síðustu aldar. Það er því ekki að undra að eigendi hótelsins hafi ákveðið að gera sér mat úr því þó langt sé um liðið.
Þann fimmtánda apríl síðastliðinn voru tuttugu ár liðinn frá því að Greta lést. Af því tilefni var herbergi 204 breytt í Garboherbergið og reynt að færa herbergið í það horf sem það var í þegar Greta bjó þar. Og sem meira er þá keypti hóteleigandinn rúm sem áður tilheyrði leikkonunni og kom því fyrir í herberginu. Dýnunni var reyndar skipt út en annars er rúmið í upprunalegu standi.
Fyrir ofan rúmgaflinn hangir mynd af þessari leyndardómsfullu leikkonu en Greta settist í helgan stein þegar hún var á hátindi ferilsins, aðeins 36 ára gömul. Hún sagðist vilja vera látin í friði og flutti í stóra íbúð á Manhattan í New York. Þar lést hún tæpum fimmtíu árum síðar.
Þeir sem vilja halla sér í rúmi leikkonunnar þurfa að borga sem samsvarar tuttugu og sjö þúsund íslenskum krónum fyrir nóttina.
NÝTT EFNI: Smáréttasvall að hætti Baska
TENGT EFNI: Þar sem rokkstjörnurnar gista í París
Mynd: Hotel Kung Carl



Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle