Flugmiðar á útsölu
Sunnudagur, 23. maí 2010 13:51
Þeir sem vilja komast lengra út í heim en íslensku flugfélögin fljúga geta fengið farmiðana ódýrt um þessar mundir.

Gosið í Eyjafjallajökli hefur valdið mikilli óvissu í ferðageiranum. Hún hefur áhrif á verðlagninguna eins og sést þegar skoðaðar eru heimasíður flugfélaganna í Evrópu. Þær skarta margar hverjar flennistórum auglýsingaborðum þar sem boðnir eru til sölu flugmiðar á spottprís. Meira að segja farmiðar sem gilda í sumar. Og framboðið á ódýrum miðum á eftir að aukast því British Airways hyggst efna til "brunaútsölu" þegar verkfallsaðgerðir starfsmanna eru yfirstaðnar í byrjun júní, samkvæmt frétt Telegraph. Þar kemur líka fram að annar flugrisi, AirFrance/KLM, ætli að halda verðinu lágu í sumar. Sérfræðingar Telegraph telja að verðlækkun sé eina leiðin til að fá fólk um borð í vélarnar á nýjan leik. Að ógleymdum endalokum eldgossins.
Hér eru nokkur dæmi um tilboð til áfangastaða sem ekki liggja nærri þeim flugvöllum sem flogið er beint til frá Keflavík.
Innan Evrópu:
AIR BERLIN - Þeir sem eru áhugasamir um grísku eyjarnar geta flogið beint á nokkra þeirra frá Berlín. Verðið er í kringum þrjátíu þúsund íslenskar fyrir báðar leiðir.
NORWEGIAN - Sé ferðinni heitið til Balkanskaga eða Möltu þá er norska lággjaldaflugfélagið fínn kostur. Bæði frá Osló og Kaupmannahöfn. Önnur leiðin kostar frá 299 dönskum krónum.
SAS - Skandinavíska flugfélagið auglýsir lagersölu þessa dagana á farmiðum sem gilda í ágúst til október. Þeir sem eru á leið til Rússlands á þessum tíma ættu að kanna verðin en SAS flýgur til Moskvu og St. Pétursborgar og þessar tvær borgir eru meðal útsöluvaranna.
Utan Evrópu:
AIR FRANCE - Það er hægt að fljúga langt með Air France frá París. Karabíska hafið heillar væntanlega marga og fram til áttunda júní er tilboð á flugi til nokkurra eyja. Verðin eru frá áttatíu þúsund íslenskum krónum.
BRUSSELS AIRLINES - Frá Brussel er flogið beint til margra borga í Afríku. Nokkrar þeirra eru núna á tilboðsprís.KLM - Hollenska flugfélagið flýgur víða og á heimasíðu þess má finna tilboð á farmiðum til Asíu, Afríku og S-Ameríku. Tilboðsverðin gilda til 7. júní.
Íslenska leitarvélin Dohop er líka góður kostur til að leita að ódýrum flugmiðum.
NÝTT EFNI: Smáréttasvall að hætti Baska
TENGT EFNI: Ódýr hótel í Kaupmannahöfn



Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur