Góðar nektarstrendur við Miðjarðarhaf

Sumum þykir fátt yndislegra en að svamla allsber í volgum sjó, leggjast svo á ströndina og leyfa sólinni að þerra á sér hvern krók og kima.

Það getur samt reynst þrautinni þyngri að finna strendur þar sem leyfilegt er að stunda sólböð án baðfata. Hér er hins vegar listi yfir þær nektarstrendur sem hið danska blað Politiken telur vera þær bestu við Miðjarðarhafið. Á þeim öllum getur fólk áhyggjulaust sólað sig berrassað og jafnað út sundbuxna- og bikiniför.

Frakkland

Vendays-Montalivet - Norður frá Bordeaux er þessi fyrsti opinberi baðstaður nektarsinna í heiminum. Það er því ekki að undra að alþjóðleg samtök þessa hóps hafi verið stofnuð þar árið 1953. Á tjaldsvæðinu er hægt að leigja kofa með útsýni út á Atlantshafið.

Cad d´Adge - Þessi afgirti smábær í nágrenni Montpellier á suðurströnd Frakklands er einn vinsælasti áfangastaður kviknakinna karla og kvenna. Hér hafa þau allt plássið fyrir sig en heimamenn eru vanir að borða kvöldmatinn í fötum.

Grikkland

Banana Beach - Á eyjunni Skiathos eru tvær strendur kenndar við bjúgaldin, Big Banana Beach og Small Banana Beach. Áður fyrr héldu strippalingarnir til á þeirri fyrrnefndu en nú hafa þeir fært sig yfir á þá minni. Þar una samkynhneiðgðir og gagnkynhneigðir, fjölskyldur og einhleypir sáttir við sitt svo lengi sem engin klæði sjást á svæðinu.

Paradise Beach - Á partíeyjunni Mykanos er hægt að baða sig nakinn á paradísarströndinni sem er fjóra og hálfan kílómetra frá bænum.

Ítalía

Capocotta - Það eru fleiri en bara sumarhúsagestir Berlusconi sem þykir gott að ganga um naktir í ítalskri nátturu. Í meira en þrjátíu ár hefur þessi strönd, suður af Róm, laðað til sín þennan hóp fólks. Um aldamótin ákváðu yfirvöld að afmarka þann hluta strandarinnar þar sem sólböð án klæða eru leyfð.

Lido de Alberoni - Ekki svo langt frá túristaörtröðinni í miðborg Feneyja liggur þessi nektranýlenda við Lido di Venedig ströndina. Þangað kemst fólk með því að taka bát úr miðbænum og svo strætó.

NÆSTA SÍÐA: NEKTARSTRENDUR Í KRÓATÍU OG SPÁNI



Get Adobe Flash player

Könnun

Er líklegra að þú farir í utanlandsferð sumarsins á eigin vegum eða með ferðaskrifstofu?



Niðurstöður

Ferðaminningar

Ferðaminningar Magnúsar Orra Schram

Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda

 
Ferðaminningar Ólafar Nordal

Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda

 
Ferðaminningar Arnar Úlfars Sævarssonar

Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum

 
Ferðaminningar Guðrúnar Helgadóttur

Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.

 
Ferðaminningar Bryndísar Björgvinsdóttur

Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.

 

Billund

Flug og hjól á Jótlandi

Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu

 
Í Legó í fríinu

Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland

 
Stærsta völundarhús heims og landsins bestu kartöflur

Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland

 

 
Hallirnar í heimahéraði Jóakims prins

Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar

 
Danskt eyjahopp

Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða

 
Stórtónleikastaður Dana

Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín

 

Hitt og þetta

Tvö glæný hótel í Berlín

Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum

 
25 byggilegustu borgirnar

Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle

 

 
Útpæld hótel á góðu verði

Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París

 
Fyrsta gönguleiðin fyrir allsbera

Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna

 
5 bestu ódýru veitingastaðirnir í Kaupmannahöfn

Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn

 

 
Ekki svo einfalt með Easy Jet

Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur

 

 
Share |