Fyrsta gönguleiðin fyrir allsbera
Miðvikudagur, 06. júlí 2011 09:16
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna.
Þeir Íslendingar sem eru striplingar af lífi og sál hafa ekki marga möguleika á að fá útrás fyrir þessa þörf sína hér á landi. Alla vega ekki ef þeir vilja sleppa við sekt eða tukthúsvist. Í Þýskalandi eru íbúarnir hins vegar miklu vanari því að bera sig til dæmis þegar þeir sóla sig, synda eða fara í gufubað. Og nú geta áhugasamir um göngur og nekt slegið tvær flugur í einu höggi því frá bænum Dankerode í Harz héraði liggur nú átján kílómetra slóði sem ætlaður er kviknöktu göngufólki.
Harzer Naturistenstieg er leiðin kölluð um mun vera fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Hana má þá fór í fullum skrúða en þeir sem það gera mega eiga von á hósti og jafnvel athugasemdum frá göngugörpum á Adams- og Evuklæðum. Líkt og gerist þegar óvanir túristar fara í sundfötum í þýska gufu.
NÝJAR GREINAR: Ferðaminningar Mikaels Torfasonar
TENGDAR GREINAR: Góðar nektarstrendur við Miðjarðarhaf
Hotels.com: Sumarútsala - bókaðu gistingu með 40% afslætti
Mynd: Alesa Dam/Creative Commons




