Ódýrustu hótelin í Bretlandi
Þriðjudagur, 18. ágúst 2009 22:15
Örvænting greip um sig meðal breskra hótelstjóra í sumar og hafa þeir keppst við að undirbjóða hvern annan síðustu vikur. Tilboðin hafa aldrei verið jafn lág samkvæmt frétt netútgáfu The Times og ennþá er hægt að fá hótel á hálfvirði, sérstaklega ef bókaðar eru fleiri en tvær nætur.
Það má telja líklegt að verðstríðið haldi áfram í haust enda er kreppan ekki á enda og töluvert hefur dregið úr viðskiptaferðalögum. Það yrðu góðar fréttir fyrir Íslendinga því Bretland er í mörgum tilvikum ódýrari áfangastaður fyrir okkur núna en til að mynda Norðurlöndin. Enski boltinn er líka skemmtilegri áhorfs en sá danski og það er auðveldara að halda þræði í leikhúsi í London en Stokkhólmi. Það er því um að gera að leggjast í smá rannsóknarvinnu til að finna ódýr hótel miðsvæðis í London, Manchester eða Glasgow og komast í ódýra helgarferð.
Túristi auðveldar vinnuna og hér eru tenglar á nokkrar síður þar sem finna má ódýra gistingu (verðdæmi miðast við tveggja manna herbergi):
Travelodge - Þessi hótel eru út um allt Bretland og ódýrasta gistinóttin kostar 19 pund. Það verð virðist ekki vera á boðstólum í stóru borgunum en ódýrustu herbergin sem við fundum í London voru á 32 pund. Það má gera ráð fyrir að tvær nætur kosti a.m.k. 100 pund þar í borg. Í Manchester og Glasgow eru verðin um þriðjungi lægri. Travelodge hótelin bjóða ekki upp á neinn lúxus og eru ekki alltaf miðsvæðis. Það borgar sig því að skoða hótelupplýsingarnar vel áður en bókað er.
Premier Inn - Önnur ódýr hótelkeðja en aðeins dýrari en Travelodge. Helgargisting í London kostar á bilinu 150 til 180 pund.
Jurys Inns - Hér er aðbúnaðurinn töluvert betri en á Premier Inn og Travelodge. Ódýrustu verðin í London eru 79 pund fyrir eina nótt.
Hilton - Hilton tekur líka þátt í tilboðaslagnum og ódýrasta gistingin í London í haust er á innan við 100 pund.
Á heimasíðu ferðamálaráðs Lúndúna eru reglulega sett inn tilboð á gistingu og ef heppnin er með manni fær maður mjög gott hótel á Travelodge verðum.
Tengt efni:
Verslað í rólegheitum í London



Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna