Ódýrt í hádeginu við Strikið

Verðin á matseðlum veitingastaðanna í Kaupmannahöfn hafa hækkað töluvert í íslenskum krónum talið. Þó finnast þar ennþá staðir þar sem maturinn er verðlagður þannig að ferðamenn, með tekjur í íslenskum krónum, geta vel við unað. Hér er listi yfir nokkra  matsölustaði í nágrenni við Strikið þar sem óhætt er að taka tilboðum um ódýran hádegismat.

 

Hamborgarar og steikur

Sporvejen - Við Grábræðratorg 17 er lítill hamborgarastaður sem er innréttaður eins og gamaldags sporvagn. Á matseðlinum er fjölbreytt úrval af hamborgurum og kostar sá ódýrasti fimmtíu og tvær danskar krónur (47 krónur ef valið er kjúklingakjöt). Ommeletturnar eru líka freistandi sem og morgunmaturinn sem samanstendur af beikoni, eggjum og ristuðu rúgbrauði (kostar 59 dkr). Þeim sem ætla að spara rækilega og fá sér kranavatn með matnum skal bent á að fyrir vatnsglasið eru rukkaðar níu danskar krónur líkt og algengt er á dönskum veitingastöðum og kaffihúsum.

Halifax - Hamborgarar eru í aðalhlutverki á Halifax við Larsbjørnsstræde 9. Í hádeginu kostar borgari hússins sextíu og níu danskar. Reikningurinn hækkar um helming ef gos eða franskar eru pantaðar með. 

Jensen's Bøfhus - Þessi steikarhús er að finna vítt og breitt í Danmörku. Þar á meðal við Grábræðatorg í miðbæ Kaupmannahafnar. Í hádeginu geta gestir valið á milli hakkebøf, nautasteikur og kjúklingarétts sem kosta 49 danskar með sósu og frönskum.

Samlokur

Af samloku- og beyglustöðunum er nóg af í Kaupmannahöfn. Í götunum Larsbjørnsstræde og Studiestræde, sem liggja við hvora aðra, eru nokkrir ódýrir skyndibitastaðir þar sem hægt er að fá samlokur á 35 til 45 krónur. Feinsmækker er einn af þeim en hann er til húsa á Larsbjørnsstræde 7. Bakarinn við Sankt Peders Stræde 29 (gatan liggur samsíða Studiestræde) er einnig ódýr heim að sækja. Þar er sætabrauð á tilboði á hverjum degi og samlokurnar kosta 30 til 40 krónur. Hægt er að tylla sér niður á meðan borðað er.

Smurbrauð

Dönsk matarmenning nær hæstu hæðum á smurbrauðsstofunum í hádeginu. Það er er því ekki annað hægt en að benda á tvo aldargamla staði þar sem ódýrustu réttirnir kosta rúmar fjörtíu danskar. Þeir sem vilja eitthvað annað en síld borga hins vegar aðeins meira. 

Kanal Cafeen - Heit lifrarkæfa með beikoni og sveppum kostar 52 danskar og roastbeef með spæleggi 56 krónur. Ekki þarf að borga aukalega fyrir að sitja inni á einum elsta veitingastað Kaupmannahafnar og fá matarkúltúr Dana beint í æð.

Café Petersborg - Saga staðarins nær aftur til 1746 og því er merkilegt að setjast þar niður og smakka á réttunum sem hafa verið á matseðlunum um mjög langt skeið. Kjötbollur með súrum gúrkum og rauðkáli kosta 54 danskar og nóg er af góðgæti á matseðlinum.

Meira: Matur og drykkur í Kaupmannahöfn

Bookmark and Share
Get Adobe Flash player

Könnun

Er líklegra að þú farir í utanlandsferð sumarsins á eigin vegum eða með ferðaskrifstofu?



Niðurstöður

Ferðaminningar

Ferðaminningar Arnar Úlfars Sævarssonar

Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum

 
Ferðaminningar Magnúsar Orra Schram

Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda

 
Ferðaminningar Bryndísar Björgvinsdóttur

Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.

 
Ferðaminningar Guðrúnar Helgadóttur

Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.

 
Ferðaminningar Ólafar Nordal

Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda

 

Billund

Stórtónleikastaður Dana

Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín

 
Hallirnar í heimahéraði Jóakims prins

Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar

 
Danskt eyjahopp

Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða

 
Stærsta völundarhús heims og landsins bestu kartöflur

Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland

 

 
Í Legó í fríinu

Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland

 
Flug og hjól á Jótlandi

Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu

 

Hitt og þetta

5 bestu ódýru veitingastaðirnir í Kaupmannahöfn

Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn

 

 
Útpæld hótel á góðu verði

Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París

 
Ekki svo einfalt með Easy Jet

Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur

 

 
Fyrsta gönguleiðin fyrir allsbera

Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna

 
Tvö glæný hótel í Berlín

Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum

 
25 byggilegustu borgirnar

Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle

 

 
Share |