Skíðaferð til útlanda á gamla genginu
Laugardagur, 03. október 2009 20:00
Skíðaáhugafólk sem kvíðir snjóleysinu hér heima og þykir ferðalag í Alpana of dýrt ætti að horfa til Póllands. Skíðasvæðin í Karkonosze fjöllunum, á landamærum Póllands og Tékklands, eru heimavöllur margra atvinnumanna í skíðaíþróttum og þar hefur átt sér stað mikil uppbygging síðustu ár. Núna er rétti tíminn til að kanna aðstæður á þessu svæði enda er margfalt ódýrara að skíða í pólsku og tékknesku brekkunum en þeim í Mið-Evrópu.
Ódýr lyftukort
Hæsta fjallið í Karkonsosze fjöllunum er Sniezka (1602m) og í hlíðum þess er að jafnaði snjór hundrað og tuttugu daga á ári. Norðurhlutinn, sem tilheyri Póllandi, er snjóþyngri og þar er þekktasta skíðasvæðið Szklarska Poreba. Fyrstu snjókornin falla í nóvember og vertíðin varir til loka aprílmánaðar.
Lyftukort sem gildir í fimm daga kostar innan við fimmtán þúsund íslenskar krónur. Það er helmingi ódýrara en lyftukort í Madonna Di Campiglio. En hafa skal í huga að aðbúnaðurinn í Póllandi jafnast ekki alltaf á við það besta í Ölpunum. Hótelin eru t.a.m. langflest tveggja til þriggja stjörnu og veitingastaðirnir ekki eins góðir. Gistingin er aftur á móti í ódýrari kantinum og kostar nótt í tveggja manna herbergi tíu til fimmtán þúsund krónur, sjá nánar á Booking.com.
Ferðamannaiðnaðurinn í kringum skíðasvæðið er í blóma og ágætis úrval af veitingastöðum, verslunum, börum og næturklúbbum. Verðlagið er líka hagstætt í Póllandi og það er því líklegra að slæmt gengi íslensku krónunnar gleymist í fríi þar en á Alpasvæðinu.
Stutt frá Berlín og Prag
Szklarska Poreba er í hæfilegri akstursfjarlægð frá Berlín og Prag. Svæðið liggur því betur við en tvö þekktustu skíðasvæði Pólverja, Szczyrk og Zakopane. Það tekur um þrjár og hálfan tíma að keyra frá höfuðborg Þýskalands en rúma tvo tíma frá Prag. Iceland Express flýgur allt árið til Berlínar og frá Kaupmannahöfn og London er hægt að finna ódýrt flug til Prag.
Þeir sem eru tilbúnir að leggja á sig örlítið flóknara ferðalag til að fá tækifæri til að renna sér í Szczyrk eða Zakopane geta flogið með Iceland Express til Varsjár og tekið lestina þaðan til Kráká morgunin eftir. En skíðasvæðin eru rétt sunnan af Kráká. Lestarmiðinn kostar um 10.000 krónur báðar leiðir.
Það skíðafólk sem er tilbúið til að leggja á sig smá vinnu við skipulagningu ferðar í pólsku fjöllin í vetur mun standa uppi með töluvert ódýrari skíðaferð en er í boði í Ölpunum.
Meira: Ódýr hádegismatur við Strikið



Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum