Skautasvell í stórborgum
Miðvikudagur, 16. desember 2009 23:15
Skelltu þér á skauta í næstu borgarferð og gleymdu öllu um verðlausa krónu rétt á meðan þú dansar um svellið eða rembist við að standa í fæturna.
Ferðabókaútgefandinn Lonely Planet birti nýverið lista yfir fallegustu skautasvell í heimi. Eins og gefur að skilja á New York sína fulltrúa á listanum enda hafa ófáar rómantískar kvikmyndasenur verið teknar upp á skautasvellinu við Rockefeller Center eða í Central Park. London og París eiga líka sína fulltrúa á listanum.
Hér eru svellin sem Lonely planet mælir með að ferðamenn skelli sér út á:
New York
Í Central Park eru tvö skautasvell sem mælt er með, Wollman Rink og Lasker Rink. Það er opið alla daga á veturna og leiga á skautum kostar fimm og hálfan dollara. Fullorðnir borga rúma 6 dollara inná svellið en börn þrjá og hálfan. Það er auðkýfingurinn og sjónvarpsstjarnan Donald Trump sem á klakann.
Þeir sem vilja heldur prófa að stíga á skauta við Rockefeller Center borga rúmlega fimmtán dollara fyrir herlegheitin. Það kostar hins vegar ekki neitt að renna sér á The Pond við Bryant Park enda borgar bankarisinn Citi reikninginn.
London
Fram til 10. janúar er hægt að skauta framhjá Tower of London. Það kostar 12 pund fyrir fullorðna en átta fyrir börn. Við Nátturusögusafnið er líka svell og hægt er að komast í Rockefeller Center stemningu við Canary Wharf. Í Hyde Park lokar hins vegar stuttu eftir áramót.
París
Við Hôtel de Ville kostar ekkert að slást í hóp franskra skautahlaupara og eins er hægt að stunda íþróttina við Montparnasse.
Berlín
Við hið sérstaka Potsdamer Platz í höfuðborg Þýskalands er hægt að renna sér á skautum en þó aðeins fram til þriðja janúar. Berlín er mikil jólaborg og kjörinn áfangastaður fyrir Íslendinga enda er verðlagið þar miklu viðráðanlegra en í hinum stórborgunum.
MEIRA: Vegvísir um París og London



Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna