Ókeypis skemmtun fyrir staurblanka í Makaó
Mánudagur, 21. desember 2009 09:55
Íslenskt viðskiptafólk sem vitja þarf fasteigna sinna í Makaó getur gert sér dagamun þar fyrir lítið. Hér listi yfir alls kyns dægradvöl sem kostar ekki krónu í þessari fyrrum portúgölsku nýlendu þar sem næstum allt snýst um peninga. 
Makaó hefur verið töluvert í fréttum hér á landi undanfarið ár vegna misheppnaðra fjárfestinga íslenskra auðmanna í þessu kínverska sjálfstjórnarhéraði.
- The Bubble - Inní þessari hvelfingu er sett á svið mikið sjónarspil þar sem laserar, ljós og eldar eru notaðir til að segja söguna af Fjársjóði drekans. Sýningin er daglegt brauð og það er ókeypis inn.
- Í Makaó er hægt að taka leigubíla og strætó sem hvoru tveggja kostar ekki mikið. Þeir hagsýnustu taka hins vegar strætisvagnana sem spilavítin borga undir viðskiptavini sína. Bílstjórarnir kíkja víst aldrei á miðana og því er ekkert mál að stelast til að nota vagnanna þó maður hafi ekkert lagt undir í spilavítunum.
- Maturinn í Makaó er víst vel heppnuð blanda af portúgölskum og kínverskum réttum. Þeir sem vilja hins vegar ekki borga fyrir veitingarnar geta þegið smakk af sölubásum sem liggja frá Senado torginu og í átt að Sankti Páls dómkirkjunni.
- Miðborg Makaó er talin til heimsmynja og þar geta gestir skoðað rústir kirkna, hofa og virkja fyrir ekki neitt.
- Nýlenduþorpið er minnisvarði um lífið í Makaó fyrr á öldum. Það kostar reyndar smávegis að komast þangað með strætó en hins vegar kostar ekkert inn á svæði.
Þeir sem vilja heldur slá um sig í Makaó ættu að leggja leið sína í stærsta spilavíti heims, The Venetian og freista gæfunnar.
NÝTT: Gott kaffi í Gautaborg



Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna