Hótel í eigu fræga fólksins

Heimsfrægir leikarar og popparar ferðast meira en margur. Þeir eru því sjóaðir hótelgestir og einhverjir þeirra hafa ákveðið að nýta þessa reynslu og opna sitt eigið hótel. Túristi kannaði markaðinn og fann nokkur frambærileg hótel sem eiga það öll sameiginlegt að vera í eigu fræga fólksins.   

 

Bedford Post Inn, Bedford, Bandaríkjunum: Silfurrefurinn Richard Gere er eigandi lítils sveitahótels í bænum Bedford í námunda við New York borg. Þar eru átta herbergi, jógaaðstaða og tveir veitingastaðir. Að mati Esquire tímaritsins voru veitingastaðirnir meðal þeirra bestu sem opnaðir voru á síðasta ári í Bandaríkjunum. The Farmhouse heitir sá fínni en á The Barn er boðið uppá brunch og hádegismat og einnig er bakarí á staðnum. Þangað leggja margir borgarbúar á sig ferðalag um helgar til að komast í sveitasæluna og góðan mat. Vel gert hjá Gere og konunni hans en þau tóku bæði virkan þátt uppbyggingu hótelsins. Leikarinn segist vera reglulega á svæðinu til að passa upp á að allt sé eins og það á að vera. 

The Big sleep, Bretland - Leikarinn alvarlegi John Malkovich rekur þrjú hótel í Bretlandi undir nafninu The Big sleep. Fjölskyldur á ferðalagi um Cardiff, Eastbourne eða Cheltenham ættu einna helst að taka hús á Malkovich því gististaðirnir hans eru sagðir mjög barnvænir með leikaðstöðu, borðtennisborðum og fleira. Það er ekki heldur svo dýrt að gista hjá Jóni því ódýrustu herbergin eru á um níu þúsund krónur. 

Hotel Rival, Stokkhólmi - Benny Anderson er ásamt Bjorn félaga sínum stærsta poppskáld sem Svíþjóð hefur alið. Lögin sem þeir sömdu á Abba árunum eru næstum því jafnvinsæl í dag og þau voru þegar þau komu út fyrir næstum fjörtíu árum síðan. Benny er því ekki á flæðiskeri staddur fjárhagslega og getur leyft sér að freista gæfunnar í hótelgeiranum. Rival er vel staðsett í Södermalm hverfinu sem er talinn mest hipp og kúl hluti borgarinnar. Þó Benny sé ekki alla daga á hótelinu sjálfur þá eru hans helstu höfundaverk á svæðinu því á öllum herbergjum er eintak af Abba Gold. Ódýrasta herbergið á Rival í sumar kostar tæpar fjórtán þúsund íslenskar. 

The Clarence, Dublin - Þeir liðsmenn hljómsveitarinnar U2 sem bera listamannanöfn opnuðu í sameiningu þetta fína hótel í heimaborg sinni Dublin fyrir rúmum áratug síðan. Þeir félagar sjást víst stöku sinnum innan veggja hótelsins enda er það besta auglýsingin sem The Clarence getur fengið. Ódýrasta herbergið kostar um 30.000 krónur.  

Hotel Greenwich, New York -  Robert De Niro hefur í mörg ár látið til sín taka í veitingahúsabransanum í New York. En hann á líka eitt af huggulegustu hótelunum í heimaborg sinni. Alla vega er ferðapressann á einu máli um að hótelið sé einstaklega heimilislegt og notalegt. Þar er líka ítalskur veitingastaður og japanskt spa. Það þarf því ekki að koma á óvart að gistingin er í dýrari kantinum. Nóttin kostar um sextíu þúsund krónur.

MEIRA: Dýrasta listaverk í heimi á heima í Danmörku og Ný lönd fyrir bakpokaferðalanga

TILBOÐ: 10% afsláttur af gistingu í Kaupmannahöfn fyrir lesendur Túrista

 

Bookmark and Share

Get Adobe Flash player

Könnun

Er líklegra að þú farir í utanlandsferð sumarsins á eigin vegum eða með ferðaskrifstofu?



Niðurstöður

Ferðaminningar

Ferðaminningar Magnúsar Orra Schram

Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda

 
Ferðaminningar Bryndísar Björgvinsdóttur

Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.

 
Ferðaminningar Arnar Úlfars Sævarssonar

Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum

 
Ferðaminningar Guðrúnar Helgadóttur

Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.

 
Ferðaminningar Ólafar Nordal

Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda

 

Billund

Stórtónleikastaður Dana

Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín

 
Stærsta völundarhús heims og landsins bestu kartöflur

Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland

 

 
Hallirnar í heimahéraði Jóakims prins

Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar

 
Í Legó í fríinu

Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland

 
Flug og hjól á Jótlandi

Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu

 
Danskt eyjahopp

Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða

 

Hitt og þetta

5 bestu ódýru veitingastaðirnir í Kaupmannahöfn

Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn

 

 
25 byggilegustu borgirnar

Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle

 

 
Fyrsta gönguleiðin fyrir allsbera

Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna

 
Tvö glæný hótel í Berlín

Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum

 
Útpæld hótel á góðu verði

Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París

 
Ekki svo einfalt með Easy Jet

Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur

 

 
Share |