Borðað á Vespu
Ítalskur sveitamatur í nýdönskum umbúðum. Vespa er staðurinn fyrir þá sem vilja borða mikið, borga frekar lítið en sitja á smekklegum stað.
Þeir mega eiga það veitingamennirnir á veitingastaðnum Vespa að þeim hefur tekist vel til með matinn og innréttingarnar. Verðið skemmir ekki heldur fyrir. Hér má auðveldlega gleyma sér yfir fínum og vel útilátnum mat í umhverfi sem er afslappað þó það beri þessi merki að vera útpælt. Túristi mæli óhikað með þessum stað.
Fimm rétta matseðill kostar 300 danskar krónur. Fyrir hrun krónunnar okkar þótti þetta gjafaverð fyrir góðan ítalskan mat á notalegu veitingahúsi í miðbæ Kaupmannahafnar. Eftir hrun er þetta einn besti kosturinn þegar fólk vill gera aðeins betur við sig og njóta þess að sitja að snæðingi í nokkra klukkutíma.



Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum