Berlín: Hótelíbúðir í Mitte hverfinu- 10% afsláttur fyrir lesendur Túrista
Fimmtudagur, 03. júní 2010 19:49
Josty-Brauerei er mjög vel staðsett íbúðarhótel í hinu líflega Mitte hverfi. Í stuttu göngufæri frá Reichstag, Brandenburgarhliðinu og Hackescher Markt lestarstöðinni. Hótelið er til húsa í gömlu brugghúsi og þar eru sex íbúðir til leigu. Í húsinu er líka að finna vinsælan veitingastað, Maxwell.
Í stærstu íbúðunum er pláss fyrir sex gesti og þær hafa allar eldhúskrók og baðherbergi. Það kostar 70 til 80 evrur að gista á Josty-Brauerei ef tveir deila íbúð. Hvert rúm sem bætist við kostar aukalega 15 evrur.
Ef skrifað er Turisti.is í reitinn, "special whises" í bókunarformið fæst tíu prósent afsláttur af gistingunni.





Krókódílar sem borðuðu pasta voru heimalingar á gistihúsi Bryndísar Björgvinsdóttur rithöfundar við bakka Amazon. Hún hefur ferðast víða en getur ekki hugsað sér að snúa aftur til Indlands eftir óþægilega uppákomu á veitingahúsi þar í landi.
Ólöf Nordal varaformaður Sjálfstæðisflokksins gleymir stundum að pakka niður því nauðsynlegasta þegar hún fer til útlanda en man þó alltaf eftir að taka með sér bækur. Hér rifjar hún upp ferðalög sín til útlanda
Ferðataska sem hleypti lífi í fundarhöld á Gotlandi og fjölskylduferð í franska myllu er meðal þess sem Guðrún Helgadóttir rithöfundur og fyrrverandi forseti alþingis minnist úr utanlandsferðum sínum.
Skátamót í Ástralíu og reisa með slóvenskum skemmtikröftum er meðal þess sem þingmaðurinn Magnús Orri Schram hefur upplifað á ferðalögum sínum til útlanda
Rútuferðaleg um Tyrkland, ógleymanleg pizza í Napólí og veikindi á fimm stjörnu hóteli er meðal þess sem Gettu betur dómarinn Örn Úlfar minnist úr utanlandsferðum sínum
Úti fyrir ströndum Jótlands liggur fjöldi eyja sem gaman er að skoða
Lítil eyja fyrir ratvísa matgæðinga á ferðalagi um Jótland
Búseta danska prinsins rétt við þýsku landamærin er hluti af gamalli varnaráætlun dönsku hirðarinnar
Það er ekki sjálfgefið að stórstjörnurnar haldi tónleika í Kaupmannahöfn á leið sinni um Danmörku. Herning á Jótlandi lokkar nefnilega margar þeirra til sín
Flatneskjan í Danmörku er kjörlendi fyrir þá sem vilja hjóla í fríinu
Heimavöllur eins vinsælasta leikfangaframleiðanda í heimi er skyldustopp á ferðalagi fjölskyldunnar um Jótland
Í Þýskalandi finna striplingar víða griðland og því þarf ekki að koma á óvart að fyrsta merkta leiðin ætluð nöktum göngugörpum sé þar að finna
Breskur einkaklúbbur og skandinavísk hótelkeðja hafa blandað sér í slaginn um ferðamenn í þýska höfuðstaðnum
Það þarf ekki að spenna bogann til að geta búið á fínu og vel staðsettu hóteli í evrópskri stórborg. Túristi vísar veginn á góð og ódýr hótel í Amsterdam, Barcelona, Berlín, Glasgow, Madríd og París
Hér eru þær borgir sem þykja bestar til búsetu að mati tímaritsins Monocle
Hér eru þeir matsölustaðir þar sem Kaupmannahafnarbúar telja sig fá mikið fyrir peninginn
Farþegar breska lággjaldaflugfélagsins þurfa að ferðast út á Luton flugvöll um miðja nótt til að ná fluginu til Keflavíkur