Hótel í Kaupmannahöfn: Lægsta verðið og frír morgunmatur
Tryggðu þér lægsta fáanlega verðið á Hotel Kong Frederik við Ráðshústorgið og fáðu morgunmat í kaupbæti.
Hotel Kong Frederik er nýuppgert sögufrægt hótel í miðborg Kaupmannahafnar. Með Strikið, Ráðhústorgið, Tívolí og aðallestarstöðina, Hovedbanegården í göngufæri gæti staðsetningin ekki verið mikið betri. Hótelið er innréttað í klassískum enskum stíl og hefur nýlegað verið tekið í gegn. Á jarðhæðinni er splunkunýr veitingastaður, The Italian, sem er í eigu eins þekktasta veitingamanns borgarinnar. Þar er að finna morgunverðarhlaðborð hótelsins.
Lesendur Túrista geta bókað lægsta fáanlega verðið á Hotel Kong Frederik og fengið frían morgunmat í kaupbæti (að verðmæti 100 danskar krónur á mann á dag) með því að skrifa "FHTURISTI" í dálkinn "Code" í bókunarforminu.
Smellið hér til að bóka. Athugið í skrefi þrjú í bókunarferlinu, sem kallast "Addons", er spurt hvort bæta eigi morgunmat við pöntunina. Það er óþarfi að velja morgunmatinn þar því hann er innifalinn í Túristatilboðinu. Ýtið því aðeins á "Next" í þessu skrefi.



.jpg)

