Sjá og gera í Gautaborg
Þriðjudagur, 26. janúar 2010 20:13
Liseberg - Þetta gamla tívolí mun vera sá staður í Svíþjóð sem laðar til sín flesta ferðamenn. Þrjár milljónir gesta fylla garðinn yfir sumarmánuðina og í desember þegar Liseberg er opið. Stór hluti þeirra fer að minnsta kosti eina bunu í trérússibananum Baldur sem þykir bera af öðrum slíkum í heiminum. Í Liseberg er hugsað fyrir öllum þörfum fjölskyldunnar og ólíklegt að einhverjum muni leiðast heimsóknin þangað. Yfir aðventuna er jólamarkaður starfræktur í garðinum og nokkur tæki opin.
Opið: Alla daga yfir sumartímann og í desember.
Aðgangseyrir: 70 sænskar krónur fyrir eldri en sjö ára.
Göteborg Konstmuseum - Allar heimsborgir skulu hafa safn þar sem skoða má verk eftir helstu meistara listasögunnar síðustu aldir. Gautaborg uppfyllir þetta skilyrði því Konstmuseum er tignarlegt hús utan um fallegt safn af klassískum verkum eftir nafntoguðustu listamenn Svíþjóðar og Evrópu.
Opið: Opið frá 11 til fimm um helgar en lengur þriðjudaga til fimmtudaga.
Aðgangseyrir: Það kostar 40 krónur inn fyrir eldri en tuttugu og fimm ára.
Universeum - Nátturuvísindasafnið er sérstaklega hugsað fyrir fróðleiksfús börn og foreldra þeirra. Þeir sem gefa sér tíma á safninu verða margs vísari um allt milli himins og hafs. Þeir sem vilja gera safninu góð skil ættu að reikna með a.m.k. tveggja tíma heimsókn.
Opið: tíu til 18 alla daga en frá kl. 9 til 21 yfir hásumarið.
Aðgangseyrir: 155 skr. fyrir fullorðna og 99 skr. fyrir 3 til 16 ára.
Listigarðurinn Trädgården - Þessi fallegi listigarður hefur verið dekraður af borgaryfirvöldum í Gautaborg í nærri níu áratugi og árangurinn lætur ekki á sér standa. Garðurinn hefur nefnilega fengið alþjóðlegar viðurkenningar og jafnvel sagður sá fallegasti í Svíþjóð. Maður þarf samt ekki að vera áhugamaður um blóm og plöntur til að njóta heimsóknarinnar í listigarðinn því þar er notalegt að vera og njóta skandinavískrar sumarblíðu.
Opið: Frá níu á morgnana og til sólarlags.
Aðgangseyrir: Kostar ekkert inn í garðinn en 20 sænskar þarf að greiða fyrir aðgang að gróðurhúsunum
Staðsetning: Carl Skottsbergsgata 22A, sjá á korti.
Hönnunarsafnið - Á Röhsska Konstslöjdmuseet eða Design Museum kennir ýmissa grasa. Þar er hægt að skoða þúsund ára gamlan kínverskan heimilisiðnað, merkustu gripi sænskra iðnhönnuða, klassísk klæði og svo mætti lengi áfram telja.
Opið: Frá hádegi til kl. 20 á þriðjudögum, frá hádegi til klukkan fimm miðvikudaga til föstudaga og frá kl. 11 til 17 um helgar. Lokað á mánudögum.
Aðgangseyrir: 40 sænskar krónur fyrir eldri en tuttugu ára. Frítt fyrir námsmenn.
Staðsetning: Vasagata 37, sjá á korti.
