Fyrir börn í Gautaborg

Það þarf ekki að koma á óvart að í landinu sem á Evrópumet í lengd fæðingarorlofs sé gott að ferðast með börn. Leikvellir eru víða sem og græn svæði þar sem sleppa má krökkunum lausum og barnamatseðlar og stólar fást á flestum veitingastöðum. Hótel skaffa líka barnarúm sé um það beðið.

Hápunktar fyrir börnin í Gautaborg

Slotsskogen -  Í útjaðri miðborgarinnar er stórt grænt svæði sem kallast Slotsskogen. Þar er meðal annars að finna tvo dýragarða, Barnens Zoo og Djurparken. Þarna er vafra um sænsk dýr en einnig mörgæsir og pelikanar sem eiga ættir sínar að rekja til landa sem liggja víðs fjarri Svíþjóð. Í Slotsskogen er líka mjög gott leiksvæði.

Liseberg - Þetta gamla tívolí mun vera sá staður í Svíþjóð sem laðar til sín flesta ferðamenn. Þrjár milljónir gesta fylla garðinn yfir sumarmánuðina og í desember þegar Liseberg er opið. Stór hluti þeirra fer að minnsta kosti eina bunu í trérússibananum Baldur sem þykir bera af öðrum slíkum í heiminum. Í Liseberg er hugsað fyrir öllum þörfum fjölskyldunnar og ólíklegt að einhverjum muni leiðast heimsóknin þangað. Yfir aðventuna er jólamarkaður starfræktur í garðinum og nokkur tæki opin.

     Opið: Alla daga yfir sumartímann og í desember. 

     Aðgangseyrir: 70 sænskar krónur fyrir eldri en sjö ára. 

    Staðsetning á korti

Universeum -  Nátturuvísindasafnið er sérstaklega hugsað fyrir fróðleiksfús börn og foreldra þeirra. Þeir sem gefa sér tíma á safninu verða margs vísari um allt milli himins og hafs. Þeir sem vilja gera safninu góð skil ættu að reikna með a.m.k. tveggja tíma heimsókn.

     Opið: tíu til 18 alla daga en frá kl. 9 til 21 yfir hásumarið.

     Aðgangseyrir: 155 skr. fyrir fullorðna og 99 skr. fyrir 3 til 16 ára.

     Staðsetning á korti

 

 

Get Adobe Flash player

Könnun

Er líklegra að þú farir í utanlandsferð sumarsins á eigin vegum eða með ferðaskrifstofu?



Niðurstöður
Share |