Kaupmannahöfn fyrir börn
Það fyrirfinnast ekki mikið barnavænni borgir en Kaupmannahöfn. Leikvellir eru vítt og breitt um borgina og stutt á milli grænna svæða. Samgöngukerfi borgarinnar gerir barnafjölskyldum sérstaklega hátt undir höfði og það er hægðarleikur að koma kerrum og barnavögnum í neðanjarðarlestir enda alls staðar lyftur frá götu og niður á brautarpall. Mörg kaffihús og veitingahús bjóða uppá barnastóla.
Leiksvæði
Í miðbænum eru fjórir leikvellir, Nikolaj Plads (rétt við Magasin verslunina), Sankt Annæ Plads (fyrir ofan Nyhavn), Hauser Plads (ofarlega á Köbmagergade) og í Kongens Have.
Af óhefðbundnari leikvöllum borgarinnar má nefna völundarhúsið við Pile Allé í Friðriksbergi, bílaleikvöllinn við Parken og náttúruleiksvæðið við Valbyparken sem er risastórt.
Hér er kort yfir alla leikvelli í Kaupmannahöfn.
Veitingastaðir og kaffihús
RizRaz - Hlaðborð með Miðjarðarhafsréttum allan daginn. Börn yngri en 12 ára borga 35 dkr til klukkan fjögur en 40 dkr á kvöldin. Hér er ágætis leikherbergi.
Staðsetning
Magasin - Kaffihúsið á efstu hæð Magasin er með sérstaka aðstöðu fyrir börn. Minni borð, leiktæki, sjónvarp og skiptiaðstaða.
The Laundromat Café- Það er fátítt að kaffihús séu með leikaðstöðu fyrir börn en á Laundromat Café á Austurbrú er nóg af dóti fyrir börn og stórt borð sem er sérstaklega ætlað barnafjölskyldum.
Staðsetning
Wagamama - Asískur matur í krakkavænu umhverfi. Gengið er inn frá Tietgensgade ef fólk er ekki með miða í Tívolí en veitingastaðurinn er hluti af skemmtigarðinum.
Staðsetning
Ferðamálaráð Kaupmannahafnar er með góða síðu á íslensku. Hér er þeirra listi yfir það vinsælasta sem er í boði fyrir börn í borginni.
