Sjá og gera í Kaupmannahöfn

Skemmtigarðar
Tívolí - Þekktasti skemmtigarður borgarinnar og eitt aðalsmerkja hennar. Á hverju ári bætast við ný og stærri tæki sem sætir ákveðinni furðu enda er garðurinn ekki stór og hver fermetri virðist nýttur til hins ýtrasta. Hér er nóg við að vera fyrir alla aldurshópa og óhætt að gera ráð fyrir nokkrum klukkutímum í heimsóknina.
Það kostar 85 dkr inn fyrir 12 ára og eldri, 45 dkr fyrir börn. Fyrir þá sem ætla sér í mörg tæki borgar sig að kaupa "turpass", armband sem veitir ótakmarkaðan aðgang í öll tækin. Sjá verðskrá Tívolí hér (http://www.tivoli.dk/composite-3189.htm).
Tívolí er að jafnaði opið frá miðjum apríl fram í miðjan september á ári hverju og þá opið frá kl 11 á morgnana til miðnættis. Þá er einnig opið í kringum Hrekkjarvökuna (10.-19.okt) og jólin (20.nóv-30.des) en þá lokar skemmtigarðurinn kl 23 á kvöldin.

Zoo - Dýragarðurinn í Frederiksberg er mjög vinsæll meðal Kaupmannahafnarbúa. Dýrin eru af öllum stærðum og gerðum og yngstu meðlimir fjölskyldunnar fá nóg fyrir sinn snúð. Fílarnir hafa nýlega fengið nýtt húsaskjól teiknað af stjörnuarkitektinum Norman Foster sem segir ýmislegt um metnað dýragarðsins til að bjóða uppá fínustu aðstæður fyrir menn og dýr. Í dýragarðinum er ágætis úrval af mat og drykk en það er líka lítið mál að taka með sér nesti því í garðinum er sérstakt nestishús fyrir hagsýna gesti.
Aðgöngumiðinn kostar 130 dkr fyrir fullorðna en 70 dkr fyrir börn 3-11 ára. Dýragarðuinn er opinn alla daga ársins frá kl 9 á morgnana og lokar seinnipartinn um kl 16 til 17,  nema yfir hásumarið þegar opið er til klukkan 21 á kvöldin.

Söfn

Lousiana - Nýlistasafnið í Humlebæk, í nágrenni Kaupmannahafnar er eitt vinsælasta safn landsins. Sýningarnar eru fjölbreyttar og nokkrar í gangi á hverjum tíma. Garðurinn við safnið og veitingasalurinn eru líka heimsóknarinnar virði.
Lousiana er opið alla daga nema mánudaga frá klukkan tíu og til klukkan 22, virka daga en kl. 18 um helgar. Aðgangseyrir er 90 dkr fyrir 18 ára og eldri.

Ríkislistasafnið - Í glæsilegum húsakynnum, í nágrenni við Jónshús, er Statens Museum for Kunst eða Danska ríkislistasafnið. Gestir geta gjaldfrjálst gengið um sali safnins og virt fyrir sér helstu listmuni í eigu dönsku þjóðarinnar. Verkin eru eftir helstu listamenn Dana sem og útlenska risa. Mitt í herlegheitunum er svo að finna verk eftir Margréti Þórhildi drottningu sem nokkuð gott dæmi um danska kaldhæðni. Drottningunni er alla vega ekki mikill greiði gerður með þessu.
Eins og áður segir er frítt inn á sýninguna yfir listmuni í eigu safnsins og barnalistasafnið en greiða þarf aðgangseyri (80 dkr) að sérsýningum.
Opið frá kl. 10-17 (10-20 á miðvikudögum) alla daga nema mánudaga.

Önnur söfn: Danska arkitektasafnið (Aðgangseyrir 40 dkr en frítt inn á miðvikudögum frá kl. 17-21), Hönnunarsafnið (50 dkr en frítt á miðvikudagskvöldum), Þjóðminjasafnið (Frír aðgangur, opið alla daga nema mánudaga).

Sund og strendur
Við Íslendingar erum mjög góðu vanir þegar kemur að sundlaugum. Sundlaugin í Dgi-Byen hótelinu er hins vegar full boðleg þeim vandlátustu.  Það kostar 58 dkr fyrir fullorðna og 38 dkr fyrir börn eldri en tveggja ára en veittur er nokkurra króna fjölskylduafsláttu. Hægt er að leigja baðföt og handklæði.
Í góðu veðri er upplagt að kíkja á ströndina. Amager Strandpark er nokkurra kílómetra löng baðströnd með grunnum polli sem hentar fyrir börn. Aðrar fínar baðstrendur eru í Charlottenlund og Klampenborg (Bellevue ströndin). Auðvelt er að komast á Amager ströndina, t.d. með Metró en strætisvagnar ganga úr miðbænum að hinum ströndunum. Bookmark and Share
Get Adobe Flash player

Könnun

Er líklegra að þú farir í utanlandsferð sumarsins á eigin vegum eða með ferðaskrifstofu?



Niðurstöður
Share |