Matur og drykkur London

Morgunmatur - Það er viðeigandi að borða klassískan enskan morgunmat í húsakynnum sem þykja það merkileg að þau hafa verið friðuð. Pellici´s (Tube: Bethnal Green) er einn slíkra staða og hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar í rúma öld.
Við sem aldrei kynntumst bankalífinu í London á tíma útrásarinnar getum borðað morgunmatinn á The Wolseley (160 Piccadilly, Tube: Green Park)  en sá veitingastaður er til húsa í friðuðu bankaútibúi. Skammturinn kostar 13,75 pund og ætti að duga sem morgunmatur, hádegismatur og forréttur með kvöldmatnum. Breads Etcetera (127 Clapham High Street) er metnaðarfullt bakarí í Clapham hverfinu. Þar er líka boðið upp á margs konar gerðir af morgunmat. Ódýrasti rétturinn er á 3,55 pund og brauðristar á öllum borðum fyrir þá sem vilja ristað brauð með sultu.
 
Woburn Walk - Í þessa fallegu götu hópast stúdentar og hefðbundið launafólk í hádegishléinu eða í kaffipásunni. Hér veit það að maturinn er ódýr en jafnframt góður. Umhverfið hefur líka sitt að segja enda hefur götumyndin lítið breyst síðan á Viktoríutímabilinu og hafa því ófáir þættirnir og bíómyndirnar verið teknar upp við Woburn Walk. Tube: Russel Square.

Borough markaðurinn, Stoney street - Þar sem kokkarnir versla er okkur hinum óhætt. Á Borugh markaðinum halda matarnördar borgarinnar sig og þar er hægt að kaupa ferskt hráefni til að taka með heim. Einnig má alltaf fá að smakka á því sem til sölu er. Þeir sem verða svangir geta líka fengið nýlagaðar Foie gras samlokur á þrjú pund eða annan skyndibita í betri kantinum. Verðlagið er mjög mismunandi en oftast fæst mikið fyrir peninginn.
Markaðurinn er opinn á fimmtudögum frá 11 til 17, föstudaga frá 12 til 18 og laugardaga frá 8 til 17.
Tube stöð: London Bridge

St. John Bar & Restaurant
- Smithfield er gamalt iðnaðarsvæði þar sem nú má finna skemmtilega veitingastaði og bari. St. John sérhæfir sig í innmat en þeir sem ekki hafa áhuga á svínahjörtum eða lifur geta örugglega fundið eitthvað annað á matseðlinum. Aðalréttirnir kosta á bilinu 16-20 pund. Það fer vel um hópa á þessum stað og með tveggja daga fyrirvara er hægt að panta heilgrillaðan grís. Á barnum er líka hægt að borða léttari rétti.

The Garrison (99-101Bermondsey Street) - Pöbbar í Bretlandi sem leggja metnað sinn í matseldina ganga undir nafninu Gastropub. The Garrison er einn þessara staða og hann nýtur mikilla vinsælda. Hér fá gestirnir alvöru pöbbastemmingu beint í æð á meðan þeir borða steikur sem oftar en ekki eru kryddaðar að ítölskum sið og bornar fram með nýjum kartöflum, sveppum og gulrótum. Aðalréttir á kvöldin kosta upp undir 16 pund en hádegismatseðillinn er ódýrari.

Santo, 299 Portobello Road - Það geta allir vel við unað á góðum mexíkóskum matsölustað og jafnvel matvöndustu börn finna eitthvað við sitt hæfi. Veitingastaðurinn Santo í Notting Hill er ljómandi fínn veitingastaður en ekki mexíkósk túristagildra þar sem gólandi gítarleikari truflar borðhaldið. Aðalréttir kosta á bilinu 6 til 16 pund en 2 til 5 pund á barnamatseðlinum.
Opið þri til fim frá 12-15 og 18-22, fös til sun frá 12 til 23:30 (sun lokar kl. 22). Á föstudögum og um helgar er borinn fram morgunmatur til klukkan 17.

Tom´s Kitchen, 27 Cale Street - Time out tímaritið valdi morgunmatinn á Tom´s Kitchen þann besta í borginni árið 2008. Það er líka greinilegt að hér er mikið lagt upp úr fyrstu máltíð dagsins. Á matseðlinum er enskur og amerískur morgunmatur auk fjölda stakra rétta. Verðið er í hærri kantinum og gera má ráð fyrir að morgunmatur með drykkjum kosti um 15 pund á mann. Í hádeginu og á kvöldin er matseðillinn líka fjölbreyttur og því þarf ekki að ríkja einhugur í hópnum um hvað skal borða þegar sest er að snæðingi. Hamborgarar og samlokur kosta um 10 pund en steikurnar um og yfir 20 pund.
Opnunartímar á virkum dögum: 7 til 10, 12 til 15 og 18 til 23. Um helgar: 10 til 15 og 18 til 23.

Get Adobe Flash player

Könnun

Er líklegra að þú farir í utanlandsferð sumarsins á eigin vegum eða með ferðaskrifstofu?



Niðurstöður
Share |